Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   þri 09. janúar 2024 11:50
Elvar Geir Magnússon
„Hversu heimskur getur þú verið?“
Íslenski unglingalandsliðsmaðurinn Cole Campbell og einn efnilegasti leikmaður Þýskalands, Paris Brunner, voru settir í skammarkrókinn hjá Borussia Dortmund eftir að þeir stálust út af herbergi sínu eftir miðnætti í æfingaferð liðsins á Marbella.

Báðir eru þeir aðeins sautján ára en Brunner, sem hefur áður verið með agavandamál, fær að heyra það í þýskum fjölmiðlum. Bild segir í fyrirsögn sinni „Hversu heimskur getur þú verið?“.

Þar er fjallað um að Brunner hafi verið settur í agabann í fyrra en lofaði bót og betrun. Hann vann HM U17 með Þýskalandi í fyrra og var valinn maður mótsins.
Mynd: Bild

Cole Campbell kom til Dortmund frá Breiðabliki fyrir einu og hálfu ári en hann er talinn með efnilegustu leikmönnum Íslands um þessar mundir.

Hann hefur verið sjóðandi heitur með yngri liðum Dortmund undanfarna mánuði og var því valinn að fara með aðalliðinu í æfingaferð til Marbella.

Dortmund er að spila æfingaleik í dag en Cole og Brunner taka ekki þátt í þeim leik eftir agabrotið.
Athugasemdir
banner
banner