Manchester City er að ganga frá kaupum á Brasilíumanninum Savio en hann kemur til félagsins frá Troyes í Frakklandi. Hann hefur slegið í gegn á láni hjá Girona á þessu tímabili.
Brasilíumaðurinn er 19 ára gamall en hann var keyptur til Troyes frá Atlético Mineiro fyrir tveimur árum.
City Football Group, eigandi Manchester CIty, á ellefu önnur félög um en þar á meðal eru Troyes og Girona, félagið sem á Savio og félagið sem hann er í láni hjá. Savio var lánaður til Girona frá Troyes fyrir þetta tímabil en hann hefur heldur betur látið ljós sitt skína þar og verið lykilmaður í óvæntri titilbaráttu félagsins.
Telegraph segir frá því í dag að Man City þurfi að sanna það fyrir ensku úrvalsdeildinni að félagið muni borga markaðsverð fyrir leikmanninn.
Það er óljóst hvað City mun borga Troyes mikið fyrir leikmanninn en það má ekki vera undir markaðsvirði. Hertar reglur hafa verið settar á þegar félög með sömu eigendur eru að standa í viðskiptum sín á milli.
Savio, sem er spennandi kantmaður, hefur á þessu tímabili skorað fimm mörk og lagt upp sjö í spænsku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir




