Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   mið 07. febrúar 2024 22:44
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Pochettino: Kannski besta frammistaðan á tímabilinu
Mynd: EPA

Chelsea er komið áfram í enska bikarnum eftir öruggan sigur á Aston Villa í kvöld.

Conor Gallagher, Nicolas Jackson og Enzo Fernandez skoruðu mörkin.


Mauricio Pochettino stjóri liðsins er undir mikilli pressu eftir slæmt gengi á tímabilinu en hann var hæstánægður með fammistöðuna í kvöld.

„Þetta var ein af bestu frammistöðunum, kannski sú besta á tímabilinu. Ég er svo ánægður með frammistöðuna og að sjá að leikmennirnir nutu þess að spila fótbolta, það gladdi mig mest. Við erum með ungt lið og það er erfiðast að sýna stöðugleika," sagði Pochettino.


Athugasemdir
banner