Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   mið 07. febrúar 2024 10:00
Elvar Geir Magnússon
Tvíburabræður taka við stjórn egypska landsliðsins
Tvíburabræðurnir Hossam Hassan og Ibrahim Hassan hafa tekið við stjórn egypska landsliðsins. Hossam er nýr landsliðsþjálfari og Ibrahim er sérstakur framkvæmdastjóri landsliðsmála.

Hossam átti farsælan landsliðsferil sem leikmaður og er markahæstur í sögu þjóðarinnar með 68 mörk. Á þjálfaraferlinum hefur hann þjálfað mörg egypsk félög og jórdanska landsliðið.

Hann tekur við af Portúgalanum Rui Vitória sem var rekinn eftir að liðið féll úr leik í Afríkukeppninni. Egyptaland er sigursælasta lið í sögu keppninnar en féll úr leik gegn Kongó í vítakeppni í 16-liða úrslitum.

Ibrahim var varnarmaður og spilaði einnig með egypska landsliðinu. Hann og bróðir hans hafa starfað saman hjá ýmsum félögum. Þeir eru 57 ára.
Athugasemdir
banner
banner
banner