Fyrrum fótboltamaðurinn Michael Owen birti mynd af sér og syni sínum á 18 ára afmælisdag drengsins, en sú mynd hefur vakið mikla athygli og aðallega fyrir þær sakir að hann er ótrúlega líkur spænska vinstri bakverðinum Sergio Reguilon, sem er á mála hjá Brentford.
Owen og sonur hans hafa verið í sviðsljósinu síðustu daga eftir að hann opinberaði fyrir heiminum að James, sonur hans, væri með sjaldgæfan sjúkdóm.
James hafði ætlað að fylgja í fótspor föður síns og verða atvinnumaður í fótbolta en greindist með Stargardt’s augnsjúkdóminn og hefur misst sjón hægt og rólega. Hann er í dag með mikla sjónskerðingu.
Í gær birti Owen mynd af þeim feðgum á 18 ára afmæli James og er með ólíkindum hvað hann og Sergio Reguilon eru líkir.
Spænski bakvörðurinn var meira að segja óviss um hvort hann færi að skoða mynd af sjálfum sér.
„Pabbi?“ spurði Reguilon í færslu við myndina.
Dad?
— Sergio Reguilón (@sergio_regui) February 6, 2024
Athugasemdir




