Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   mið 24. janúar 2024 11:07
Elvar Geir Magnússon
Owen um sjúkdóm sonar síns: Myndi skipta við hann um augu ef það væri hægt
James Owen ásamt föður sínum.
James Owen ásamt föður sínum.
Mynd: ITV
Mynd: Instagram
Michael Owen, fyrrum sóknarmaður enska landsliðsins, hefur veitt viðtöl að undanförnu ásamt sautján ára syni sínum, James Owen.

James hafði ætlað að fylgja í fótspor föður síns og verða atvinnumaður í fótbolta en greindist með Stargardt’s augnsjúkdóminn og hefur misst sjón hægt og rólega. Hann er í dag með mikla sjónskerðingu.

„Ef við gætum látið hann fá mín augu og við gætum skipt þá myndi ég gera það. Ég myndi borga allt sem ég á til að James gæti séð aftur," segir Owen sem spilaði fyrir Liverpool, Real Madrid og Manchester United á ferli sínum en starfar í dag sem sparkspekingur í sjónvarpi.

Sonur hans James var efnilegur fótboltamaður en grunsemdir fóru að vakna þegar hann átti erfitt með að fylgjast með hreyfingum annarra leikmanna á vellinum. Í fjölskyldumyndatökum virtist hann alltaf horfa til hliðar við myndavélina en ekki á hana.

Michael og eiginkona hans Louise fóru með James til augnlæknis þar sem hann var greindur með sjúkdóminn.

„Þetta var algjört hamarshögg. Sem foreldri viltu að allt sé fullkomið og hann er það, en auðvitað var þetta erfiður tími. Maður hugsaði um framtíðina, mun hann geta keyrt? Mun hann geta unnið? Það fór margt í gegnum hugann,“ segir Owen.

„Andlega er hann rosalega öflugur, hann er með svo gott hugarfar. Ég á fjögur börn og í dag hef ég líklega minnstar áhyggjur af framtíð James."

Þeir feðgar eru að fara að gefa út heimildarmynd sem fjallar um það hvernig James hefur tekist á við sjónskerðinguna. Myndin heitir 'Football is for Everyone' eða 'Fótbolti er fyrir alla'.

Sjálfur segist James hafa lært að aðlagast breyttu lífi.

„Það sem er beint fyrir framan mig sé ég í móðu. Ég á erfitt með að sjá mismunandi liti og mismunandi ljós en jaðarsýnin er fín. Ég hef lært aðferðir eins og að taka eftir því hvernig peysan hans pabba er á litinn. Ef við förum saman út þá get ég þekkt hann á litinum en ekki frá andlitinu því ég sé ekki smáatriði," segir James.


Athugasemdir
banner