Arsenal og Chelsea hafa áhuga á Bergvall - Emery á blaði Man Utd
   lau 07. mars 2026 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Myndi ekki skipta Joao Pedro út fyrir Haaland
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Liam Rosenior þjálfari Chelsea var himinlifandi með framlag Joao Pedro í ensku úrvalsdeildinni í miðri viku. Brasilíski framherjinn skoraði þrennu í frábærum sigri á útivelli gegn Aston Villa.

Joao Pedro er þar með kominn með 14 mörk á enska úrvalsdeildartímabilinu þrátt fyrir að taka ekki vítaspyrnurnar hjá Chelsea. Eini úrvalsdeildarleikmaðurinn til að skora fleiri mörk, án þess að telja vítaspyrnur, er Norðmaðurinn Erling Haaland með 19.

Í öðrum deildum eru Kylian Mbappé (15) og Harry Kane (20) komnir með fleiri mörk.

„Joao er í þessum gæðaflokki núna. Á þeim tveimur mánuðum sem ég hef verið hjá félaginu er hann búinn að sýna það að hann er framherji í heimsklassa. Það er stöðugleiki í frammistöðunum," sagði Rosenior á fréttamannafundi í gær fyrir leik Chelsea gegn Wrexham í enska bikarnum.

„Ég vil helst tala um mína leikmenn, ég vil ekki vanvirða aðra leikmenn með að bera þá saman. Ég þekki Erling ekki vel persónulega en séð að utanfrá virðist hann vera framherji í heimsklassa. Ég myndi samt ekki skipta Joao út fyrir neinn framherja í heiminum á þessari stundu, hann hefur verið að sýna alla þá eiginleika sem ég vil sjá í sóknarmanni.

„Joao hefur aldurinn með sér, hann hefur ennþá rými til að bæta sinn leik og það er undir okkur komið að hjálpa honum. Hann er í heimsklassa, við þurfum að gera allt í okkar valdi til að halda honum þar og hjálpa honum að bæta sinn leik enn frekar. Það er okkar hlutverk sem þjálfarateymi og fótboltafélag í heild."


Joao Pedro er búinn að skora 17 mörk í öllum keppnum og er aðeins þremur mörkum frá því að verða fyrsti framherji Chelsea til að skora 20 mörk á sama keppnistímabilinu síðan Diego Costa afrekaði það fyrir rétt tæpum áratugi síðan, tímabilið 2016-17.

Síðan þá eru sóknartengiliðurinn Cole Palmer og kantmaðurinn Eden Hazard einu leikmenn Chelsea sem hafa skorað yfir 20 mörk á einu keppnistímabili.

   05.03.2026 08:40
Pedro: Steig dans því þetta var sérstakt kvöld fyrir mig

Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 33 21 7 5 63 26 +37 70
2 Man City 32 20 7 5 65 29 +36 67
3 Man Utd 33 16 10 7 58 45 +13 58
4 Aston Villa 33 17 7 9 47 41 +6 58
5 Liverpool 33 16 7 10 54 43 +11 55
6 Chelsea 33 13 9 11 53 42 +11 48
7 Brentford 33 13 9 11 48 44 +4 48
8 Bournemouth 33 11 15 7 50 50 0 48
9 Brighton 33 12 11 10 45 39 +6 47
10 Everton 33 13 8 12 40 39 +1 47
11 Sunderland 33 12 10 11 36 40 -4 46
12 Fulham 33 13 6 14 43 46 -3 45
13 Crystal Palace 32 11 10 11 35 36 -1 43
14 Newcastle 33 12 6 15 46 49 -3 42
15 Leeds 33 9 12 12 42 49 -7 39
16 Nott. Forest 33 9 9 15 36 45 -9 36
17 West Ham 33 8 9 16 40 57 -17 33
18 Tottenham 33 7 10 16 42 53 -11 31
19 Burnley 33 4 8 21 34 67 -33 20
20 Wolves 33 3 8 22 24 61 -37 17
Slapp
banner
banner