Kolbeinn Þórðarson samdi við Gautaborg í ágúst þegar liðið var í fallbaráttu í efstu deild í Svíþjóð en liðinu tókst að lokum að bjarga sér frá falli.
Kolbeinn var í viðtali hjá sænska miðlinum Expressen þar sem hann ræddi um síðasta tímabil og það sem framundan er.
„Þetta byrjaði vel og að lokum náðum við aðal markmiðinu okkar sem var að halda sætinu í Allsvenskan eftir að hafa komið okkur í erfiða stöðu. Ég gerði persónulega nokkra góða hluti en það voru augljóslega margir þættir sem ég get bætt mig í og ég vil gera það fyrir næsta tímabil," sagði Kolbeinn.
Kolbeinn vill verða meiri leiðtogi.
„Ég get bætt leiðtogahæfnina á vellinum og verið stærri partur af leikjunum með því að stjórna hraðanum og svo framvegis," sagði Kolbeinn.
„Ég spilaði leik í janúar og það gekk vel. Ég vona að ég hafi sýnt þjálfurunum eitthvað en það er allt sem ég get gert. Aðal markmiðið mitt er að vinna mér inn fast sæti í liðinu, spila eins vel og ég get og ef ég kemst í landsliðið mun ég gera það."
Kolbeinn á að baki einn landsleik en hann vill bæta við fleirum á ferilskrána.
„Það vilja allir spila fyrir þjóð sína því það er stærsti heiður sem til er en það væri bónus fyrir mig," sagði Kolbeinn.
Kolbeinn ræddi markmiðin sín fyrir komandi tímabil.
„Ég vil fyrst og fremst vinna mér sæti í byrjunarliðinu og hjálpa liðinu að vinna leiki. Vonandi fæ ég stærra hlutverk í ár og verða leiðtogi, bæði innan sem og utan vallar. Ég vil bæta allt sem ég get," sagði Kolbeinn.



