Stjórnvöld í Hong Kong eru verulega ósátt við það að Lionel Messi hafi verið allan tímann á bekknum í æfingaleik Inter Miami gegn úrvalsliði deildarinnar í Hong Kong á dögunum.
Inter Miami vann 4-1 sigur en 40 þúsund mættu á leikinn, flestir bara í þeim tilgangi að sjá Messi spila. Argentínski heimsmeistarinn hefur hins vegar verið að glíma við meiðsli aftan í læri og lék ekki.
Það var baulað á meðan leiknum stóð en reiðin varð enn meiri í Hong Kong þegar Messi spilaði gegn Vissel Kobe í Japan nokkrum dögum síðar.
Stjórnvöld í Hong Kong hafa lýst yfir óánægju sinni með þetta og krafist útskýringa.
Messi sjálfur segir að það hafi verið leiðinlegt að hann hafi ekki getað spilað í Hong Kong en hann vonast til að gera það einn daginn.
Lionel Messi: outcry in China and Hong Kong after star returns from injury in time for Japan match https://t.co/GxwmUKuKNr
— The Guardian (@guardian) February 8, 2024
Athugasemdir

