Barcelona vill Van de Ven - Bruno bíður - Arsenal fær þau skilaboð að Esposito sé ekki til sölu
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
Jói Bjarna: Auðvitað finnst mér þetta erfitt og skrítið
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
Birta Georgs: Fannst ég ekki geta hafnað því
Elín Helena: Ein heima að gera mig til fyrir fimmtugsafmæli
Sveindís Jane: Erum ekki að fara vinna þær í því og það er í lagi
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
„Það er ekkert lið á Íslandi svona gott"
„Ég skoraði nokkur svona á hana á Hlíðarenda"
„Mér finnst rauður fara henni betur"
Séra Davíð Þór fer yfir viðburðaríka mánuði í Skírisskógi - „Stórhættulegur brandari“
Enski boltinn - Horfðu á þáttinn í mynd
„Jói er Breti og ég elska Breta“
   fös 08. maí 2015 21:38
Alexander Freyr Tamimi
Harpa Þorsteins: Er búin að ströggla mikið í vetur
Kvenaboltinn
Harpa Þorsteinsdóttir skoraði tvö.
Harpa Þorsteinsdóttir skoraði tvö.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Harpa Þorsteinsdóttir, framherji Stjörnunnar, var að vonum ánægð eftir að liðið varð meistari meistaranna með 4-1 sigri gegn Breiðabliki í Garðabænum í kvöld.

Harpa skoraði tvö mörk og lagði upp eitt í þessum góða sigri Íslands- og bikarmeistaranna, en Stjarnan lagði Blika einnig á dögunum í úrslitaleik Lengjubikarsins.

„Ég er bara mjög ánægð með þetta. Það er alltaf erfitt að spila við sama liðið á viku. Þó við höfum unnið þær 3-0 síðast vissum við að þetta yrði allt annar leikur og mjög erfiður, þannig að við erum mjög ánægðar með að hafa náð að klára okkar færi í dag," sagði Harpa við Fótbolta.net eftir sigurinn.

Harpa raðaði inn mörkum á síðustu leiktíð og það var ekki að sjá að hún sé að fara að gera minna af því í sumar.

„Þetta var fínt. Ég er búin að vera í miklu ströggli í vetur og ekki búin að vera að spila vel, búin að vera í meiðslum og svona. Þannig að ég er ótrúlega ánægð með að komast í gang fyrir mót, ég á að skila inn í þetta lið" sagði Harpa.
Athugasemdir
banner
banner