Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   fös 09. febrúar 2024 08:52
Elvar Geir Magnússon
Byrjum Þjóðadeildina heima gegn Svartfellingum
Icelandair
Sverrir Ingi í landsleiknum gegn Portúgal á síðasta ári.
Sverrir Ingi í landsleiknum gegn Portúgal á síðasta ári.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
UEFA hefur staðfest leikdaga í Þjóðadeildnni næsta haust. Dregið var í riðla í gær og er Ísland í riðli með Wales, Svartfjallalandi og Tyrklandi í B-deildinni.

Leikirnir fara fram í september, október og nóvember og er hægt að sjá leiki Íslands hér að neðan.

Leikir Íslands
Ísland - Svartfjallaland föstudaginn 6. september
Tyrkland - Ísland mánudaginn 9. september
Ísland - Wales föstudaginn 11. október
Ísland - Tyrkland mánudaginn 14. október
Svartfjallaland - Ísland laugardaginn 16. nóvember
Wales - Ísland þriðjudaginn 19. nóvember

Liðið sem endar í efsta sæti kemst upp í A-deild, liðið í öðru sæti fer í umspil í mars 2025 um að komast upp í A-deild.

Liðið sem endar í neðsta sæti fellur niður í C-deild, liðið í þriðja sæti fer í umspil í mars 2025 um að halda sæti sínu í B-deildinni.
Athugasemdir
banner
banner