Klukkan 19:15 hefst seinni leikur KR og írska liðsins Cork á KR-velli en fyrri leikurinn endaði með 1-1 jafntefli.
Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum
Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum
Vængmaðurinn Billy Dennehy, markahæsti leikmaður Cork á tímabilinu, flaug ekki til Íslands með írska liðinu eftir að hafa slegist við samherja sinn eftir fyrri leikinn ytra.
Hann lenti í deilum við Mark O'Sullivan, sem er í byrjunarliði Cork, á vellinum eftir fyrri leikinn. Þurfti að aðskilja þá tvo. Dennehy verður rekinn frá Cork í kjölfarið á þessu.
Bróðir Billy, Darren Dennehy, sem einnig leikur með Cork er heldur ekki með í kvöld. Samkvæmt knattspyrnustjóra Cork, John Caulfield, er það vegna nárameiðsla.
Athugasemdir