Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
   lau 10. júlí 2021 16:36
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Foden gæti misst af úrslitaleiknum
Mynd: EPA
Phil Foden missti af síðustu æfingu liðsins í morgun fyrir úrslitaleik EM gegn Ítalí sem fram fer á morgun.

Enska liðið tók loka æfingu fyrir leikinn í morgun á æfingarsvæði landsliðsins.

Allir leikmennirnir í hópnum voru prófaðir fyrir Covid-19 og allir fengu neikvætt.

„Hann er tæpur. Við verðum að skoða hann aftur en hann er með smávægileg meiðsli á fæti. Bara spurning hvort hann jafni sig í tæka tíð, við verðum bara að skoða það síðar," sagði Gareth Southgate landsliðsþjálfari í samtali við BBC.

Foden hefur tekið þátt í þremur leikjum Englands á EM. Hann kom inná sem varamaður í framlengingunni í 2-1 sigri Englendinga gegn Dannmörku í undan úrslitum.
Athugasemdir
banner
banner
banner