Liverpool meðal félaga sem vilja Bowen - Juventus hefur áhuga á Jackson - Ederson orðaður við Man Utd
   þri 12. maí 2026 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ásgeir á leið í aðgerð á hné
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ásgeir Sigurgeirsson, leikmaður KA, hefur ekkert spilað á tímabilinu og er á leið í aðgerð á hné vegna meiðsla sem hafa plagað hann. Ásgeir hefur verið óheppinn með meiðsli á hné á sínum ferli, hefur tvívegis slitið krossband.

Þá er enn beðið eftir því að Rodri, miðjumaður liðsins, komist í myndatöku vegna hnémeiðsla, það ætti að gerast snemma í næstu viku.

Í samtali við Fótbolta.net segir Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, að hann byggist ekki við því að Rodri yrði lengi frá. „Honum líður miklu betur í hnénu, þannig mér finnst ólíklegt að þetta séu slæm meiðsli. Hann verður þó ekki með í næstu leikjum."

Hallgrímur sagði einnig frá því að Guðjón Ernir Hrafnkelsson yrði að öllum líkindum hvíldur gegn Ægi í bikarleik liðanna á fimmtudag eftir að hafa fengið högg á kinnbeinið í leiknum gegn ÍBV á sunnudag.

Þjálfarinn var þá nokkuð bjartsýnn að Hrannar Björn Steingrímsson gæti náð einhverjum mínútum á vellinum undir lok móts, en bakvörðurinn varð fyrir því óláni að slíta hásin á æfingu í janúar.
Slapp
banner