Casemiro, leikmaður Manchester United, segir Gareth Bale hafa verið heilsteyptari leikmann en Cristiano Ronaldo.
Brasilíumaðurinn var samherji Bale og Ronaldo hjá Real Madrid, en Bale féll oft í skugga Ronaldo sem er talinn einn besti leikmaður allra tíma.
Casemiro, sem er 34 ára gamall, vann Meistaradeildina fimm sinnum með Madrídingum, en hann heldur því fram að Bale sé mun heilsteyptari leikmaður en Ronaldo.
„Cristiano skorar minnst fimmtán mörk á tímabili, en Bale gat sótt, varist, skallað og skorað,“ sagði Casemiro í hlaðvarpsþætti Rio Ferdinand.
„Cristiano er sá besti, en hann er í öðrum heimi. Taktu Cristiano út úr samtalinu og þá er Bale sá besti og mun heilsteyptari leikmaður.“
„Allt sem hann gerir er svo ótrúlega gott. Hann er snöggur, allt of sterkur og er í raun bara framúrskarandi,“ sagði Casemiro.
Bale eyddi níu árum hjá Real Madrid. Hann vann Meistaradeildina fimm sinnum með Casemiro og kom að 174 mörkum í 258 leikjum með spænska félaginu.



