Cristiano Ronaldo og félagar í Al Nassr þurfa að bíða í nokkra daga í viðbót til þess að fagna deildarmeistaratitlinum eftir að hafa gert dramatískt 1-1 jafntefli við erkifjendur sína í Al Hilal í kvöld.
Ronaldo kom til Al Nassr í lok árs 2022 en hann var að vinna sinn fyrsta deildartitil með liðinu.
Al Nassr þurfti sigur til að tryggja titilinn. Franski varnarmaðurinn Mohamed Simakan kom Al Nassr yfir á 37. mínútu með skoti úr miðjum teignum eftir hornspyrnu.
Nokkrar sekúndur voru eftir af leiknum þegar brasilíski markvörðurinn Bento kýldi fyrirgjöf í eigið net. Mjög klaufalegt hjá Bento sem var kominn langt út úr markinu og kýldi boltann aftur fyrir sig og í netið.
Ronaldo var eins og venjulega í byrjunarliði Al Nassr en var tekinn af velli undir lok leiks.
Al Nassr er enn í lykilstöðu um titilinn. Liðið er með fimm stiga forystu á Al Hilal sem á tvo leiki eftir.
Á laugardag mun Al Hilal mæta Neom. Ef liðið tapar stigum þar mun Al Nassr vinna titilinn en ef þeir vinna mun deildin ekki ráðast fyrr en í lokaumferðinni sem fer fram 21. maí.
NOOO, INCREÍBLE!! BENTO SE EQUIVOCA EN LA SALIDA Y EL AL-HILAL LE EMPATA A AL-NASSR A LOS 98 MINUTOS! INSÓLITO.
— Nahuel Lanzón (@nahuelzn) May 12, 2026
SI GANABA EL EQUIPO DE CR7 ERAN CAMPEONES DE LA LIGA SAUDI!pic.twitter.com/ElvaG1u8xl


