Liverpool meðal félaga sem vilja Bowen - Juventus hefur áhuga á Jackson - Ederson orðaður við Man Utd
   þri 12. maí 2026 21:11
Brynjar Ingi Erluson
Neuer gæti farið með Þjóðverjum á HM
Mynd: EPA
Þýski miðillinn Kicker segir vaxandi líkur á því að hinn fertugi Manuel Neuer gæti tekið fram hanskana með þýska landsliðinu á HM næsta mánuði.

Neuer hefur átt stórkostlegt tímabil með Bayern München, en hefur ekki spilað með landsliðinu síðan á EM fyrir tveimur árum.

Hann tilkynnti þá að landsliðshanskarnir væru komnir upp í hillu og til þessa hefur hann lokað á möguleikann á að snúa aftur.

Kicker heldur því fram að hann sé nú alvarlega að íhuga að fara með Þjóðverjum á HM.

Julian Nagelsmann mun tilkynna hópinn 21. maí og eru taldar miklar líkur á að Neuer verði valinn.

Hann er í 55-leikmanna úrtakshóp Nagelsmann ásamt þeim Jonas Urbig, Oliver Baumann, Alexander Nübel og Finn Dahmen. Baumann hefur verið slakur með Hoffenheim síðustu mánuði og þá er Marc andre ter Stegen að glíma við meiðsli.

Það eru því yfirgnæfandi líkur á því að Neuer verði í lokahópnum hjá Þjóðverjum.

Neuer á 124 landsleiki að baki með Þjóðverjum og stóð í rammanum er þjóðin vann heimsmeistaramótið árið 2014.
Slapp
banner