Spænsk stórlið vilja Cucurella - Liverpool heldur áfram að reyna við Diomande - Arsenal hyggst fá Rogers og Kroupi
   þri 12. maí 2026 12:35
Kári Snorrason
Nörgaard leggur landsliðsskóna á hilluna
Mynd: EPA
Danski miðjumaðurinn Christian Nörgaard hefur lagt landsliðsskóna á hilluna. Nörgaard, sem er 32 ára, lék 41 landsleik fyrir Danmörku.

Hann tilkynnti ákvörðun sína á Instagram fyrr í dag og sagði tímasetninguna vera rétta eftir að danska landsliðið náði ekki að tryggja sér sæti á komandi heimsmeistaramóti.

Nörgaard gekk til liðs við Arsenal fyrir tímabilið en hefur ekki verið í stóru hlutverki hjá liðinu. Hann hefur spilað 19 leiki á tímabilinu, þar af aðeins sex í deild.

Færslu Nörgaard má sjá hér fyrir neðan.



Slapp
banner