Spænsk stórlið vilja Cucurella - Liverpool heldur áfram að reyna við Diomande - Arsenal hyggst fá Rogers og Kroupi
banner
   þri 12. maí 2026 21:52
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Betis í Meistaradeildina í fyrsta sinn í 21 ár
Antony og Real Betis spila í Meistaradeildinni á næsta tímabili
Antony og Real Betis spila í Meistaradeildinni á næsta tímabili
Mynd: EPA
Levante vann dýrmætan sigur í fallbaráttunni
Levante vann dýrmætan sigur í fallbaráttunni
Mynd: EPA
Real Betis mun leika í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð en þetta var staðfest eftir 2-1 sigur liðsins á Elche. 21 ár er liðið síðan Betis lék síðast í keppninni.

Cucho Hernandez og Pablo Fornals skoruðu mörk Betis sem spilaði ellefu gegn tíu stærstan hluta seinni hálfleiksins eftir að Leo Petrot sá rautt í liði Elche.

Betis er komið í Meistaradeild Evrópu fyrir næstu leiktíð, í fyrsta sinn síðan tímabilið 2005-2006.

Atlético vann 2-1 sigur á Osasuna á útivelli.

Nígeríumaðurinn Ademola Lookman kom Atlético yfir á 15. mínútu með marki úr vítaspyrnu og gerði varamaðurinn Alexander Sorloth annað markið tuttugu mínútum fyrir leikslok.

Hinn fjölhæfi Marcos Llorente sá sitt annað gula spjald um það bil tíu mínútum fyrir leikslok áður en Osasuna náði í sárabótarmark í uppbótartíma er Enrique Barja stýrði boltanum í slá og inn.

Atlético á enn möguleika á að ná þriðja sætinu, en það er nú í 4. sæti með 66 stig, þremur stigum frá Villarreal.

Levante ætlar ekki að gefast upp í fallbaráttunni. Það vann dramatískan 3-2 sigur á Celta Vigo á útivelli.

Levante er komið upp í 16. sæti deildarinnar með 39 stig, en fimm lið eru með sama stigafjölda, þar á meðal Girona sem situr í fallsæti þegar tvær umferðir eru eftir.

Úrslit og markaskorarar:

Osasuna 1 - 2 Atletico Madrid
0-1 Ademola Lookman ('15 , víti)
0-2 Alexander Sorloth ('71 )
1-2 Enrique Barja ('90 )
Rautt spjald: Marcos Llorente, Atletico Madrid ('79)

Betis 2 - 1 Elche
1-0 Cucho Hernandez ('9 )
1-1 Hector Fort ('41 )
2-1 Pablo Fornals ('68 )
Rautt spjald: Leo Petrot, Elche ('49)

Celta 2 - 3 Levante
1-0 Ferran Jutgla ('4 )
1-1 Kervin Arriaga ('43 )
2-1 Ferran Jutgla ('48 )
2-2 Adrian De La Fuente ('57 )
2-3 Brugue ('63 )
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 38 31 1 6 95 36 +59 94
2 Real Madrid 38 27 5 6 77 35 +42 86
3 Villarreal 38 22 6 10 72 46 +26 72
4 Atletico Madrid 38 21 6 11 62 44 +18 69
5 Betis 38 15 15 8 59 48 +11 60
6 Celta 38 14 12 12 53 48 +5 54
7 Getafe 38 15 6 17 32 38 -6 51
8 Vallecano 38 12 14 12 41 44 -3 50
9 Valencia 38 13 10 15 46 55 -9 49
10 Real Sociedad 38 11 13 14 59 61 -2 46
11 Espanyol 38 12 10 16 43 55 -12 46
12 Athletic 38 13 6 19 43 58 -15 45
13 Elche 38 10 13 15 49 57 -8 43
14 Alaves 38 11 10 17 44 56 -12 43
15 Sevilla 38 12 7 19 46 60 -14 43
16 Osasuna 38 11 9 18 44 50 -6 42
17 Mallorca 38 11 9 18 47 57 -10 42
18 Levante 38 11 9 18 47 61 -14 42
19 Girona 38 9 14 15 39 55 -16 41
20 Oviedo 38 6 11 21 26 60 -34 29
Slapp
banner
banner