Sigurinn sæti gegn Bosníu og Hersegóvínu í gær gerir það að verkum að enn er möguleiki á að ná 2. sæti í riðlinum og komast þar með beint á EM 2024. Möguleikinn er fjarlægur og allt þarf að ganga upp.
Fjórar umferðir eru eftir af riðlinum og í októberleikjunum eigum við tvo heimaleiki; gegn Lúxemborg og Liechtenstein. Fullt hús þar og hagstæð úrslit í öðrum leikjum gætu opnað dyrnar fyrir síðasta gluggann í nóvember.
Þar leikur Ísland gegn Slóvakíu og það er hægt að halda í smá von um að sá leikur verði gríðarlega mikilvægur. Ísland mun svo leika gegn Portúgal í lokaumferðinni á meðan Slóvakía mætir Bosníu.
Möguleiki Íslands var tekinn saman í þessari grein á mbl.is og þó hann sé fjarlægur þá er hann til staðar.

Horft til umspilsins
Langlíklegasta niðurstaðan er þó að Ísland muni enda í umspili í mars. Þátttakan þar tengist árangri í Þóðadeildinni en ekkert stigasöfnun í undankeppninni. Heyra mátti á Age Hareide landsliðsþjálfara í gær að umspilið er það sem hann horfir til núna.
Ísland fór í umspil fyrir EM alls staðar, vann Rúmeníu í stökum undanúrslitaleik á Laugardalsvelli en tapaði á svekkjandi hátt fyrir Ungverjalandi í úrslitaleik í Búdapest.
Undanúrslitaleikir umspilsins verða spilaðir 21. mars á næsta ári og svo úrslitaleikirnir fimm dögum síðar. Það mun því ekki ráðast fyrr en á næsta ári hvort Ísland verði með á Evrópumótinu í Þýskalandi sem spilað verður í júní og júlí.
Stöðutaflan

L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir