Watkins orðaður við United - Bayern sýnir Díaz áhuga - Arsenal hefur rætt við Eze
   lau 10. maí 2025 23:48
Jóhann Þór Hólmgrímsson
2. deild: Níu leikmenn Kormáks/Hvatar unnu - KFA á toppnum
Grótta fer hægt af stað
KFA er á toppnum
KFA er á toppnum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KFA er á toppnum í 2. deild eftir sigur á Ægi í dag.

KFA náði forystunni snemma leiks og Jacques Baye Mben bætti öðru markinu við fyrir liðið snemma í seinni hálfleik. Aron Fannar Hreinsson klóraði í bakkann fyrir Ægi sem er með eitt stig eftir tvær umferðir.

Grótta er án stiga eftir tap gegn Kormáki/Hvöt. Kormákur vann leikinn 2-0 en liðið fékk tvö rauð spjöld undir lok leiksins en Grótta tókst ekki að nýta sér það. Kormákur/Hvöt steinlá 8-1 gegn KFA í fyrstu umferð.

Víkingur Ó. lagði KFG eftir að hafa lent undir. Kári vann dramatískan sigur á Hetti/Huginn og Þróttur Vogum lagði Dalvík/Reyni.

Ægir 1 - 2 KFA
0-1 Jawed Abd El Resak Boumeddane ('7 )
0-2 Jacques Bayo Mben ('56 )
1-2 Aron Fannar Hreinsson ('75 )

Víkingur Ó. 4 - 1 KFG
0-1 Jón Kristinn Elíasson ('15 , Sjálfsmark)
1-1 Luis Romero Jorge ('19 )
2-1 Ingvar Freyr Þorsteinsson ('32 )
3-1 Ivan Lopez Cristobal ('53 )
4-1 Asmer Begic ('79 )

Höttur/Huginn 1 - 2 Kári
0-1 Matthías Daði Gunnarsson ('53 )
1-1 Eyþór Magnússon ('65 )
1-2 Sigurður Hrannar Þorsteinsson ('89 )

Kormákur/Hvöt 2 - 0 Grótta
1-0 Abdelhadi Khalok El Bouzarrari ('60 )
2-0 Helistano Ciro Manga ('77 )
Rautt spjald: ,Juan Carlos Dominguez Requena, Kormákur/Hvöt ('87)Goran Potkozarac, Kormákur/Hvöt ('88)

Þróttur V. 1 - 0 Dalvík/Reynir
1-0 Auðun Gauti Auðunsson ('17 )
2. deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Ægir 10 7 2 1 27 - 12 +15 23
2.    Þróttur V. 10 7 1 2 17 - 9 +8 22
3.    Grótta 10 5 4 1 19 - 12 +7 19
4.    Haukar 10 5 2 3 15 - 14 +1 17
5.    Dalvík/Reynir 10 5 1 4 14 - 11 +3 16
6.    Víkingur Ó. 10 3 4 3 19 - 14 +5 13
7.    KFG 10 4 1 5 16 - 18 -2 13
8.    Kormákur/Hvöt 10 4 0 6 11 - 18 -7 12
9.    KFA 10 3 2 5 22 - 20 +2 11
10.    Kári 10 3 0 7 12 - 24 -12 9
11.    Víðir 10 2 2 6 10 - 15 -5 8
12.    Höttur/Huginn 10 1 3 6 11 - 26 -15 6
Athugasemdir
banner