Fernandes í stað Fernandes? - Owen vill Alonso - Chelsea leitar til systurfélagsins - Ítalskur bakvörður til Liverpool? - Arsenal í baráttuna um Gordon
Jökull: Menn klára páskaeggin í kvöld og svo erum við klárir
Álitið - Hvaða lið veldur mestu vonbrigðum?
Hallgrímur Mar eftir að hafa byrjað á bekknum: „Hvað heldur þú?“
KA menn klöppuðu hreindýrum fyrir 0-5 sigurinn
Kristófer Ingi: Ekkert heyrt um samning og fókusa á að spila
Todor Hristov eftir 0-5 tap: „Aðeins dýrara lið en okkar“
Linta svekktur: Ánægður með spilamennskuna
Gylfi fékk högg og bólgnaði - „Það þarf bara að skoða það“
Alex Freyr: Draugar síðustu leikja sem koma
„Of margir sem eru spurningamerki sem er ekki gott þegar mótið er að hefjast“
Venni eftir sigur í Eyjum: Er alveg í skýjunum
Elías Már um samkeppnina: Erum tveir ólíkir framherjar og styðjum við bakið á hvor öðrum
Óli Skúla um danskan framherja: Þú ert þá að segja mér fréttir
Siggi Höskulds: Það er fokking óþolandi
„Ákvað að skjóta í markmanninn og það virkaði"
Þrennt sem stóð upp úr hjá Jóa Kalla
Álitið: Hver verður stoðsendingahæstur?
Bestur í Mjólkurbikarnum - „Klúbbur sem á ekkert að vera í þessari deild“
Tap í uppbótartíma en Konni er stoltur
Fyrirliðinn Eiður Aron: Við ætlum að vinna þessa deild
   fös 13. júní 2014 22:43
Björn Steinar Brynjólfsson
Andri Ólafs: Með alltof sterkt lið til að vera í svona fíflaríi
Mynd: Grindavík
,,Ég held að við höfum ekki átt mikið meira skilið út úr þessum leik en þetta," sagði Andri Ólafsson leikmaður Grindavíkur eftir 1-1 jafntefli við Þrótt í 1. deildinni í kvöld en liðinu hefur gengið illa í sumar og var að ná í sitt fjórða stig úr fimm leikjum í sumar. Andri var ekki sammála fréttamanni Fótbolta um að Grindavík hafi byrjað vel en áminntur um að þeir hafi haldið boltanum vel sagði hann.

Lestu um leikinn: Grindavík 1 -  1 Þróttur R.

,,Jájá, við gerum það alltaf. Við erum yfrleitt meira með boltann og höldum honum þokkalega en við sköpum ekki neitt og opnum ekki neitt," sagði Andri en aðspurður hvort liðið yrði ekki að nýta færin sem þeir þó fengu í byrjun og lok leiksins sagði hann.

,,Ég veit það ekki, ég hef þá verið að horfa á einhvern annan leik því mér fannst við ekki opna neitt að viti. Þótt við séum að spila ágætlega upp völlinn erum við ekki að fá færi eða koma okkur í góðar stöður. Þetta hefur farið hræðilega af stað og virðist ætla að halda áfram."

Fjórða stig Grindavíkur í sumar en Andri er hundsvekktur með gengið. ,,Já það er stig og þetta safnast saman en við verðum að fara að skoða hvað við erum að gera. Við erum með alltof sterkt lið til að vera í svona fíflaríi. Það er engin flækja, það er ekki sagt að liðið ætl beint upp án þess að það sé eitthvað á bakvið það, það er fullt á bakvið það. En eins og staðan er núna erum við að spila okkur út úr þessu móti og sumarið gæti klárast ansi fljótt.
Slapp
banner
banner