Orri Þórðarson og hans lið töpuðu í dag fyrir ÍBV með tveimur mörkum gegn engu.
Lestu um leikinn: ÍBV 2 - 0 FH
Þrátt fyrir tapið var Orri ánægður með spilamennskuna í sínu liði.
„Nei, ég er ekki ósáttur við spilamennskuna, stelpurnar löðgu allt sem þær áttu í leikinn. Við eigum ekki góða byrjun, fáum á okkur mark á fyrstu mínútu en stelpunum til hrós þá bretta þær upp ermarnar og áttu góðan fyrri hálfleik," sagði Orri.
ÍBV átti góðan leik og hefði hæglega getað bætt við mörkum.
„Í seinni hálfleik fannst mér ÍBV sterkari aðilinn og þær eru með frábæra sentera sem hljóta að vera með þeim bestu í deildinni og að lokum unnu þær verðskuldað,"
FH ætlar sér að styrkja liðið með nýjum leikmönum þegar félagsskiptaglugginn opnar á föstudaginn.
„Já, við erum með eitt eða tvö járn í eldinum, við erum ekki að fara að taka bara einhvern, ef við fáum leikmann þá er það einhver sem munar um og mun styrkja okkur," sagði Orri að lokum.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum að ofan.























