Chelsea opnar viðræður við Milan - Saliba í samningaviðræðum - Bellingham til Dortmund?
   mið 13. september 2023 12:39
Elvar Geir Magnússon
Meðaleinkunnir landsliðsins - Jón Dagur verið bestur
Icelandair
Jón Dagur Þorsteinsson.
Jón Dagur Þorsteinsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aron Einar Gunnarsson fékk 10 í Liechtenstein.
Aron Einar Gunnarsson fékk 10 í Liechtenstein.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nú þegar Ísland hefur leikið sex leiki af tíu í undankeppni EM er tilvalið að skoða einkunnagjöf Fótbolta.net í riðlinum hingað til. Miðað er við að leikmaður spili a.m.k. 20 mínútur í leik til að fá einkunn en það eru undantekningar á því.

Ef miðað er við að leikmenn hafi spilað að minnsta kosti fjóra af leikjunum er það Jón Dagur Þorsteinsson sem er með hæstu meðaleinkunnina eða 6,25.

Aron Einar Gunnarsson fékk hæstu einstöku einkunnina en hann fékk fullt hús, 10, fyrir þrennuna sem hann skoraði sem miðvörður gegn Liechtenstein. Það er hinsvegar eini leikurinn sem Aron hefur spilað í undankeppninni.

Sex leikir:
Jón Dagur Þorsteinsson 6.25
Guðlaugur Victor Pálsson 6
Rúnar Alex Rúnarsson 6
Jóhann Berg Guðmundsson 5,67

Fimm leikir:
Hörður Björgvin Magnússon 4,6

Fjórir leikir:
Willum Þór Willumsson 6
Hákon Arnar Haraldsson 5,75
Arnór Ingvi Traustason 5,5
Alfreð Finnbogason 5,25

---------------------

Þrír leikir:
Albert Guðmundsson - 6,83
Alfons Sampsted 5,3
Valgeir Lunddal Friðriksson 4

Tveir leikir:
Sverrir Ingi Ingason 7
Arnór Sigurðsson 6
Mikael Anderson 6
Mikael Egill Ellertsson 6
Orri Steinn Óskarsson 5,5
Sævar Atli Magnússon 5
Kolbeinn Birgir Finnsson 5
Davíð Kristján Ólafsson 4,75

Einn leikur:
Aron Einar Gunnarsson 10
Hjörtur Hermannsson 8
Andri Lucas Guðjohnsen 7
Stefán Teitur Þórðarson 7
Ísak Bergmann Jóhannesson 6
Daníel Leó Grétarsson 2
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner