Barcelona vill Van de Ven - Bruno bíður - Arsenal fær þau skilaboð að Esposito sé ekki til sölu
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
Jói Bjarna: Auðvitað finnst mér þetta erfitt og skrítið
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
Birta Georgs: Fannst ég ekki geta hafnað því
Elín Helena: Ein heima að gera mig til fyrir fimmtugsafmæli
Sveindís Jane: Erum ekki að fara vinna þær í því og það er í lagi
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
„Það er ekkert lið á Íslandi svona gott"
„Ég skoraði nokkur svona á hana á Hlíðarenda"
„Mér finnst rauður fara henni betur"
Séra Davíð Þór fer yfir viðburðaríka mánuði í Skírisskógi - „Stórhættulegur brandari“
Enski boltinn - Horfðu á þáttinn í mynd
„Jói er Breti og ég elska Breta“
   mán 13. október 2014 21:12
Brynjar Ingi Erluson
Arjen Robben: Við gáfum þeim þessi mörk
Icelandair
Mynd: Ingólfur Hannes Leósson
Mynd: Ingólfur Hannes Leósson
Arjen Robben, leikmaður hollenska landsliðsins, var auðvitað svekktur eftir 2-0 tap liðsins gegn Íslandi í undankeppni EM í kvöld.

Gylfi Þór Sigurðsson kom Íslandi yfir með marki úr vítaspyrnu og bætti svo öðru marki við eftir hornspyrnu. Robben var ekki ánægður með hollenska liðið í dag.

,,Það verður að hrósa Íslandi. Við hjálpuðum þeim með mörkin og gáfu þeim þessi mörk og gerðum okkur erfitt fyrir."

,,Þeir komu ekki á óvart, við vissum að þetta væri gott lið. Þetta snýst ekki bara um Ísland heldur hvernig við spiluðum. Við fundum ekki pláss og ekki menn frammi í góðum stöðum og þetta verður erfitt ef við gefum þeim tvö mörk."

,,Þeir gerðu þetta vel og vörðust vel. Við vissum að við yrðum að fá ekki á okkur mark og gefa ekki mörk frá okkur. Við vinnum saman og töpum saman og ég vil ekki benda á einn né neinn, við fengum góð tækifæri en við töpuðum saman í dag."

,,Þetta lítur ekkert sérstaklega vel út en það eru margir leikir eftir. Ísland er komið með gott forskot og Tékkland líka og við verðum að koma sterkir til baka. Við megum ekki gera fleiri mistök,"
sagði hann að lokum.
Athugasemdir
banner
banner