Fylkir 5 - 0 FH
1-0 Baldur Kári Helgason ('6 , sjálfsmark)
2-0 Hlynur Sævar Jónsson ('19 )
3-0 Máni Austmann Hilmarsson ('24 )
4-0 Dagur Traustason ('48 )
5-0 Máni Austmann Hilmarsson ('54 )
Lestu um leikinn
1-0 Baldur Kári Helgason ('6 , sjálfsmark)
2-0 Hlynur Sævar Jónsson ('19 )
3-0 Máni Austmann Hilmarsson ('24 )
4-0 Dagur Traustason ('48 )
5-0 Máni Austmann Hilmarsson ('54 )
Lestu um leikinn
Heimir Guðjónsson og lærisveinar hans í Fylki unnu 5-0 stórsigur á gömlu félögum hans í FH í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins á tekk-vellinum í Árbæ í dag.
Heimir var látinn fara í annað sinn frá FH eftir síðasta tímabil og tók hann í kjölfarið við Fylki.
Þar hefur hann verið að gera mjög vel og er stefnan sett að því að koma liðinu upp í Bestu deild.
Heimamenn komust yfir á 6. mínútu er Kári Sigfússon kom með fyrirgjöf sem fór af Baldri Kára Helgasyni og í netið.
Fylkismenn miklu betri og leið ekki langt fram að næsta marki sem Hlynur Sævar Jónsson gerði með skalla eftir sendingu Kára. Máni Austmann Hilmarsson skoraði þriðja markið á 24. mínútu.
Það var allt of auðvelt fyrir Fylki. Boltinn kom inn á teiginn á Dag Traustason, sem skallaði hann fyrir Mána sem sem skoraði örugglega.
Snemma í þeim síðari skoruðu Fylkismenn tvö til viðbótar. Dagur Trausta skoraði í fyrsta færi Fylkis á 48. mínútu. Jökull Andrésson, markvörður FH, var á undan í kapphlaupi við Mána um boltann, en Jökull náði ekki að koma honum lengra en á Dag sem setti fjórða mark leiksins.
Máni skoraði annað mark sitt á 54. mínútu. Kári enn og aftur með frábæra sendingu inn á teiginn og á Mána sem kláraði vel framhjá Jökli í markinu.
Agaleg frammistaða FH sem hefði hæglega getað fengið á sig fleiri mörk fram að lokaflauti.
Tímabilið byrjar hræðilega hjá FH-ingum sem er í næst neðsta sæti Bestu deildarinnar og enn án sigurs.
Frábært tímabil Fylkis heldur áfram sem vann Lengjubikarinn í vor og er í 3. sæti Lengjudeildarinnar með 6 stig. Þeir verða í pottinum þegar dregið verður í 8-liða úrslit á eftir.



