Gordon samþykkir að ganga í raðir Bayern - Chelsea og Man Utd vilja liðsfélaga Orra - Greenwood áfram hjá Marseille
   fim 14. maí 2026 16:33
Brynjar Ingi Erluson
Segja Lewandowski á leið til Sádi-Arabíu
Mynd: EPA
Pólska blaðið Przeglad Sportowy Onet hefur greint frá því að pólski framherjinn Robert Lewandowski verði ekki áfram hjá Barcelona á næsta tímabili. Hann er sagður á leið til Al Hilal í Sádi-Arabíu.

Lewandowski, sem er 38 ára gamall, er að renna út á samningi hjá Barcelona.

Hansi Flick, þjálfari Börsunga, var spurður út í framtíð Lewandowski og Marcus Rashford á dögunum, en sagði félagið ekki ætla að skoða þessi mál fyrr en eftir tímabilið.

Przeglad Sportowy Onte fullyrðir að Lewandowski sé á förum og hann muni ganga í raðir Al Hilal í Sádi-Arabíu.

Samkvæmt miðlinum er Al Nassr hafi einnig áhuga á Lewandowski, en hann mun þéna í kringum 90 milljónir evra í árslaun.

Þá kemur fram að Barcelona hafi boðið Lewandowski nýjan samning, en á verri kjörum en áður. Hann hafi einnig hafnað tilboðum frá Chicago Fire og Juventus.
Slapp
banner