Gordon samþykkir að ganga í raðir Bayern - Chelsea og Man Utd vilja liðsfélaga Orra - Greenwood áfram hjá Marseille
   fim 14. maí 2026 15:24
Brynjar Ingi Erluson
Tíðindi sem ýta undir að Guardiola gæti hætt hjá City í sumar
Mynd: EPA
Lorenzo Buenaventura, styrktarþjálfari Manchester City, mun yfirgefa félagið í sumar sem ýtir enn frekar undir þann orðróm að Pep Guardiola sé að hætta þjálfun liðsins.

Buenaventura og Guardiola hafa starfað saman síðan 2009. Hann kom inn í teymið hjá Barcelona það árið og fylgdi síðan Guardiola til Bayern München og Man City.

Athletic segir þá sem þekkja vel til hjá Man City eiga erfitt með að sjá Guardiola halda áfram að vinna hjá félaginu án Buenaventura.

Talið er að þetta séu augljós merki um að Guardiola sé að hætta í sumar.

Enzo Maresca, sem var rekinn frá Chelsea í byrjun árs og var áður aðstoðarmaður Guardiola hjá City, er sagður líklegastur til að taka við keflinu.

Man City heur ekki tapað allri von. Guardiola er sagður í góðu skapi og mótiveraður með hvernig ungt lið hans er að klára tímabilið og það sé því enn örlítill möguleiki á að hann klári síðasta árið af samningi sínum.
Slapp
banner
banner