Á Carlo Ancelotti landsliðsþjálfari Brasilíu að taka stórstjörnuna Neymar með á HM? Þetta er stærsta umræðuefnið í Brasilíu um þessar mundir.
Neymar, sem er 34 ára, spilar núna fyrir Santos í heimalandinu og dreymir um að vera valinn á HM. Hann var hinsvegar ekki í síðasta landsliðshóp Ancelotti fyrir mótið.
Neymar, sem er 34 ára, spilar núna fyrir Santos í heimalandinu og dreymir um að vera valinn á HM. Hann var hinsvegar ekki í síðasta landsliðshóp Ancelotti fyrir mótið.
Þetta er það heitt umræðuefni í Brasilíu að forseti landsins, Lula, segist hafa rætt það við Ancelotti.
„Ég átti spjall við Ancelotti og hann spurði mig út í mína skoðun. Ég svaraði að ef Neymar væri líkamlega klár þá væru hæfileikarnir svo sannarlega til staðar. Hann verður að hegða sér fagmannlega og getur horft til leikmanna eins og Cristiano Ronaldo og Messi," segir Lula.
„Hann er ekki gamall ennþá en hann getur ekki búist við því að vera valinn bara því hann heitir Neymar. Hann verður að vinna fyrir því á vellinum."


