Fernandes í stað Fernandes? - Owen vill Alonso - Chelsea leitar til systurfélagsins - Ítalskur bakvörður til Liverpool? - Arsenal í baráttuna um Gordon
Jökull: Menn klára páskaeggin í kvöld og svo erum við klárir
Álitið - Hvaða lið veldur mestu vonbrigðum?
Hallgrímur Mar eftir að hafa byrjað á bekknum: „Hvað heldur þú?“
KA menn klöppuðu hreindýrum fyrir 0-5 sigurinn
Kristófer Ingi: Ekkert heyrt um samning og fókusa á að spila
Todor Hristov eftir 0-5 tap: „Aðeins dýrara lið en okkar“
Linta svekktur: Ánægður með spilamennskuna
Gylfi fékk högg og bólgnaði - „Það þarf bara að skoða það“
Alex Freyr: Draugar síðustu leikja sem koma
„Of margir sem eru spurningamerki sem er ekki gott þegar mótið er að hefjast“
Venni eftir sigur í Eyjum: Er alveg í skýjunum
Elías Már um samkeppnina: Erum tveir ólíkir framherjar og styðjum við bakið á hvor öðrum
Óli Skúla um danskan framherja: Þú ert þá að segja mér fréttir
Siggi Höskulds: Það er fokking óþolandi
„Ákvað að skjóta í markmanninn og það virkaði"
Þrennt sem stóð upp úr hjá Jóa Kalla
Álitið: Hver verður stoðsendingahæstur?
Bestur í Mjólkurbikarnum - „Klúbbur sem á ekkert að vera í þessari deild“
Tap í uppbótartíma en Konni er stoltur
Fyrirliðinn Eiður Aron: Við ætlum að vinna þessa deild
   sun 15. júní 2014 21:51
Brynjar Ingi Erluson
Óli Þórðar: Veit ekki hvort Kale hafi verið að leitast eftir fríi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Þórðarson, þjálfari Víkings í Pepsi-deild karla, var ánægður með 1-2 sigur sinna manna í kvöld. Það sást langar leiðir gleði hans með þrjú stig en hann var afar hress í viðtali við fjölmiðla eftir leik.

Víkingar unnu 1-2 en liðið er í fimmta sæti deildarinnar. Liðið var að taka sinn annan sigur í röð en síðasti leikur endaði 3-2 gegn Þórsurum.

,,Þetta var frábær sigur þó svo þetta hafi ekki verið okkar besti leikur á mótinu. Ég sagði það inni í klefa, það skiptir ekki máli við höfum oft spilað betur en við gerðum í dag en við höfum aldrei fengið fleiri stig fyrir sigur svo það skiptir ekki máli," sagði Ólafur.

,,Við vorum hræddir við að spila en það var deyfð yfir mönnum fannst mér. Við vorum nýbúnir að segja það á bekknum að við þyrftum að fá á okkur mark til að jafna en svo þegar það gerðist þá slökktum við aftur."

,,Kannski hefði jafntefli verið sanngjörn úrslit en við náðum að stúta þessu og hefðum kannski getað sett fleiri. Ef Aron væri aðeins fljótari þá hefðum líklega sett fleiri."

,,Maður hefði vilja hafa hann í betra formi, hann á aðeins í land í því. Hann er heill og skapar mikið fyrir okkur."


Ingvar Kale var tæpur fyrir leikinn eftir að hafa meiðst gegn Þór í síðustu umferð en hann stóð sig vel í kvöld þó svo það sást bersýnilega að hann væri meiddur. Óli treystir honum þó fullkomlega fyrir því að spila í markinu.

,,Hann fékk væga tognun en við hefðum aldrei stillt honum upp nema við myndum treysta honum til að spila þó svo hann þyrfti að spila á annarri. Ég held að þetta sé ekkert stórkostlegt, veit ekki hvort hann hafi verið að leita eftir fríi," sagði Ólafur í stuði.

Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan.

Slapp
banner
banner