Ronny Delia, þjálfari Celtic var ánægður með sigur sinna manna gegn KR í dag.
Celtic vann leikinn með einu marki gegn engu en það var Callum McGregor sem skoraði eina mark leiksins en hann var að spila sinn fyrsta keppnisleik með liðinu.
Celtic vann leikinn með einu marki gegn engu en það var Callum McGregor sem skoraði eina mark leiksins en hann var að spila sinn fyrsta keppnisleik með liðinu.
Lestu um leikinn: KR 0 - 1 Celtic
„Við spiluðum góða vörn og andstæðingurinn fengu engin færi, við vildum vinna boltann til baka um leið og við misstum hann."
„Við vorum svona 70% með boltann og það er fullkomið. Fyrri hálfleikurinn var leiðinlegur, við spiluðum boltanum of mikið til hliðar. Ég hata þegar boltinn er gefinn til hliðar."
„Við vorum betri í seinni hálfleik, þá fórum við að taka góð hlaup og náðum að opna þá. Ég er mjög ánægður með frammistöðuna."
„McGregor gerði vel í sínum fyrsta leik í svona mikilvægum leik. Hann er mjög hæfileikaríkur en ég vildi að hann myndi fara meira fram en það kemur. Ég er mjög ánægður fyrir hans hönd að hann náði að skora."
„Ég elska að vinna, ég er hér til að vinna. Ef við vinnum en spilum illa þá er ég ekki sáttur en ef við gerum jafntefli og spilum vel þá er ég sáttur," sagði Delia.






















