Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
Jói Bjarna: Auðvitað finnst mér þetta erfitt og skrítið
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
Birta Georgs: Fannst ég ekki geta hafnað því
Elín Helena: Ein heima að gera mig til fyrir fimmtugsafmæli
Sveindís Jane: Erum ekki að fara vinna þær í því og það er í lagi
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
„Það er ekkert lið á Íslandi svona gott"
„Ég skoraði nokkur svona á hana á Hlíðarenda"
„Mér finnst rauður fara henni betur"
Séra Davíð Þór fer yfir viðburðaríka mánuði í Skírisskógi - „Stórhættulegur brandari“
banner
   sun 16. febrúar 2014 21:35
Magnús Már Einarsson
Michael Præst nýr fyrirliði Stjörnunnar: Mikill heiður
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Danski miðjumaðurinn Michael Præst er nýr fyrirliði hjá Stjörnunni en hann tekur við fyrirliðbandinu af Daníel Laxdal.

,,Það er alltaf mikill heiður að vera með fyrirliðabandið. Þetta var ákvörðun sem var tekin af öllu liðinu, fyrrum fyrirliðanum og þjálfaraliðinu. Ég er stoltur af því að vera með bandið og reyni áfram að gera mitt besta fyrir Stjörnuna," sagði Præst við Fótbolta.net eftir 2-2 jafnteflið gegn Víkingi R. í Lengjubikarnum í kvöld.

Præst fékk rauða spjaldið í leiknum í kvöld þegar hann braut á Ívari Erni Jónssyni sem var að sleppa í gegn. Ívar Örn skoraði síðan jöfnunarmarkið úr aukaspyrnunni.

,,Þetta er ákvörðun dómarans og ég get ekkert gert í þessu núna. Það var synd að enda leikinn á þennan hátt en þetta er bara svona. Ég er mjög heiðarlegur leikmaður og þetta er mitt fyrsta rauða spjald. Þetta var slys en dómarinn taldi að þetta væri rautt spjald."

Præst er bjartsýnn fyrir komandi tímabil með Stjörnunni. ,,Þú reynir alltaf að gera betur en árið áður en við vitum ekki núna hvernig liðið verður og hvernig önnur lið munu líta út þegar tímabilið byrjar. Það erfitt að tala um væntingar núna."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner