Jóhannes Harðarson, þjálfari ÍBV, var að vonum svekktur eftir 3-0 tap sinna manna gegn Fylki. Eyjamenn sitja á botni Pepsi-deildarinnar eftir þrjár umferðir en Jóhannes hefur trú á verkefninu þrátt fyrir slaka byrjun.
Lestu um leikinn: Fylkir 3 - 0 ÍBV
„Þetta er klárlega ekki sú byrjun sem við höfðum séð fyrir okkur og eftir þrjá leiki þá hafði maður séð fyrir sér einhverja aðra stöðu en þetta".
„Allavegana fyrir þennan leik var stemmningin fín. Við áttum góða æfingaviku og byrjunin á leiknum og fyrri hálfleikur benti alveg til þess. Við verðum bara að berja okkur saman og mæta eins og menn í næsta leik. Það er algjör lykilleikur á móti Leikni á miðvikudaginn," sagði Jóhannes meðal annars í samtali við Fótbolta.net en hægt er að horfa á allt viðtalið við hann í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir






















