Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 17. maí 2023 11:00
Elvar Geir Magnússon
Bonucci hættir eftir næsta tímabil
Mynd: EPA
Leonardo Bonucci, fyrirliði Juventus og ítalska landsliðsins, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir næsta tímabil.

Þessi 36 ára varnarmaður hefur átta sinnum orðið ítalskur meistari með Juve og lék sinn 500 leik gegn Sevilla í síðustu viku.

Þá er hann með 120 landsleiki að baki og var hluti af ítalska landsliðinu sem vann England í úrslitaleik EM alls staðar 2021.

„Að hafa klæðst þessari treyju hefur verið eins og að lifa drauminn í tólf ár," segir Bonucci.

Bonucci hóf sinn feril með Inter og vann þar sinn fyrsta Ítalíumeistaratitil 2006. Hann lék eitt tímabil með AC Milan. Hann lék sinn fyrsta landsleik fyrir Ítalíu í mars 2010.
Athugasemdir
banner
banner