Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   mið 17. maí 2023 20:59
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Championship: Coventry í úrslit eftir að hafa slegið út lærisveina Carrick
Sigurmarkinu í kvöld fagnað.
Sigurmarkinu í kvöld fagnað.
Mynd: Getty Images
Middlesbrough 0 - 1 Coventry
0-1 Gustavo Hamer ('57 )

Coventry er á leið í úrslitaleik Championship umspilsins eftir 0-1 útisigur gegn lærsiveinum Michael Carrick, Middlesbrough, í seinni undanúrslitaleik liðanna. Fyrri leikurinn endaði með markalausu jafntefli.

Gustavo Hamer skoraði eina mark leiksins eftir undirbúning frá Viktor Gyökeres á 57. mínútu leiksins.

Zach Steffen, lánsmaður frá Manchester City, fór í illa ígrundað úthlaup í marki Middlesbrough og náðu gestirnir að nýta sér það vel og skora eina mark einvígisins. Cameron Archer komst nálægt því að jafna leikinn á sjöundu mínútu uppbótartíma en tilraun hans fór í þverslána á marki Coventry. Áður hafði Matt Crooks skorað mark fyrir heimamenn en það var dæmt af vegna rangstöðu.

Coventry mætir Luton í úrslitaleiknum um sæti í efstu deild á Wembley um aðra helgi. Luton sló í gær út Sunderland í hinni undnaúrslitaviðureigninni. Coventry var síðast í úrvalsdeildinni tímabilið 2000-01. Luton endaði í 3. sæti deildarinnar í vetur og Coventry endaði í 5. sæti.

Eina mark leiksins má sjá hér.
Athugasemdir
banner