Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mið 17. maí 2023 16:38
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Man Utd tilbúið að losa sig við 13 leikmenn í sumar
Harry Maguire er fyrirliði Man Utd en hann má yfirgefa félagið í sumar.
Harry Maguire er fyrirliði Man Utd en hann má yfirgefa félagið í sumar.
Mynd: Getty Images
Manchester United er tilbúið að losa sig við 13 leikmenn í sumar. Þessir leikmenn hafa verið settir á sölulista eða fá þá ekki áframhaldandi samning í sumar.

Mirror greinir frá þessu og nafngreinir miðillinn leikmennina sem um ræðir.

Þeir sem eru komnir á sölulistann eru: Dean Henderson, Eric Bailly, Harry Maguire, Alex Telles, Brandon Williams, Scott McTominay, Anthony Elanga og Anthony Martial.

Erik ten Hag, stjóri Man Utd, er tilbúinn að losa sig við þessa leikmenn.

Þá er það ljóst að Phil Jones, Axel Tuanzebe, Ethan Galbraith, Ondrej Mastny og Charlie Wellens fá ekki áframhaldandi samning hjá félaginu.

Það verður áhugavert að fylgjast með því hvernig sumarið fer hjá Man Utd en liðið er að berjast fyrir því að komast aftur í Meistaradeildina.
Enski boltinn - Blessun í dulargervi
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner