Man Utd lækkar ekki verðmiða Rashford - Liverpool ræðir við Szoboszlai - Toney gæti snúið aftur til Englands
   mið 18. febrúar 2026 14:54
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fanney stefnir á titilinn: Gaman að spila fyrir framan þau sem maður elskar mest
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðskonurnar Fanney Inga Birkisdóttir og Thelma Karen Pálmadóttir eru í leikmannahópi Häcken sem mætir Breiðabliki í Evrópubikarnum í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 18:00, fer fram á Kópavogsvelli og er um seinni leik liðanna í 8-liða úrslitum að ræða. Sænsku meistararnir unnu fyrri leikinn með miklum yfirburðu, 7-0 lokatölur í Gautaborg.

Markvörðurinn Fanney Inga ræddi við Göteborgs-Posten fyrir leikinn.

Lestu um leikinn: Breiðablik 0 -  0 Häcken

„Stefnan er að vinna keppnina," segir Fanney. Häcken er að öllum líkindum á leið í undanúrslit keppninnar. Hún segir það ekki of háleitt markmið að stefna á að vinna keppnina. Hún var vön því að berjast við Breiðablik um titlana á Íslandi áður en hún var keypt til Håcken eftir tímabilið 2024.

„Mér finnst þetta mjög sérstakt. Það verður mjög gaman að spila heima á Íslandi en líka fyrir framan fólkið sem maður elskar mest," segir hún við GP og heldur áfram:

„Ég held að við eigum mjög góða möguleika. Við erum með sterkt lið og stefnum alltaf að því að vinna allar keppnir sem við tökum þátt í, hvort sem það er hér í Svíþjóð eða í Evrópu. Við stefnum alltaf á titilinn," segir Fanney.
Athugasemdir
banner
banner