Hvíti riddarinn 1 - 0 KFS
1-0 Eiríkur Þór Bjarkason ('94)
Hvíti riddarinn tók á móti KFS í hádeginu í eina leik dagsins í 3. deild karla.
Staðan hélst markalaus í viðureigninni, allt þar til seint í uppbótartíma þegar Eiríkur Þór Bjarkason kom boltanum í netið fyrir Mosfellinga.
Þetta reyndist eina mark leiksins og fær Hvíti riddarinn því sigurinn.
Mosfellingarnir eru með sex stig eftir þrjár umferðir á meðan KFS situr eftir með þrjú stig.
Athugasemdir