Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 18. maí 2023 13:14
Ívan Guðjón Baldursson
Alemany er hættur við Aston Villa
Mynd: Getty Images

Mateu Alemany, yfirmaður fótboltamála hjá Barcelona, er hættur við að ganga til liðs við Aston Villa í sumar.


Fabrizio Romano greinir frá þessu og verður Alemany því áfram í starfi sínu hjá Barcelona. Þar mun hann líklegast starfa samhliða Deco sem hefur verið orðaður við stöðu yfirmanns íþróttamála. 

Deco mun taka við þeirri stöðu af Jordi Cruyff sem hættir hjá Barcelona í sumar til að takast á við nýja áskorun, mögulega sem þjálfari.

Alemany var spenntur fyrir að starfa samhliða Unai Emery hjá Aston Villa en skipti um skoðun eftir samræður við Joan Laporta, forseta Barca.


Athugasemdir
banner
banner