Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 18. maí 2023 21:41
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mjólkurbikarinn: KR hafði betur í ótrúlegu markaregni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fylkir 3 - 4 KR
0-1 Kristján Flóki Finnbogason ('19 )
0-2 Jóhannes Kristinn Bjarnason ('30 )
1-2 Benedikt Daríus Garðarsson ('37 )
1-3 Aron Þórður Albertsson ('44 )
2-3 Pétur Bjarnason ('55 )
3-3 Benedikt Daríus Garðarsson ('75 )
3-4 Orri Sveinn Stefánsson ('82 , sjálfsmark)
Lestu um leikinn


Það var rosalegur leikur í Árbænum í kvöld þegar Fylkir fékk KR í heimsókn í síðasta leiknum í 16 liða úrslitum Mjólkurbikarsins.

Þetta byrjaði vel fyrir KR sem komst í tveggja marka forystu eftir hálftíma leik. Fylkismenn minnkuðu muninn en munurinn var aftur tvö mörk áður en flautað var til leiksloka.

Þegar stundarfjórðungur var til loka leiks voru Fylkismenn búnir að jafna. Pétur Bjarnason minnkaði muninn en Benedikt Daríus jafnaði metin.

Eftir mikið klafs í teignum komu KR-ingar sigurmarki inn þegar lítið var til leiksloka. KR er því síðasta liðið til að tryggja sér sæti í átta liða úrslitin.

Fylkismenn fengu tækifæri í uppbótartíma en allt kom fyrir ekki.


Athugasemdir
banner
banner