banner
   fim 18. maí 2023 16:24
Ívan Guðjón Baldursson
Ramsdale búinn að framlengja
Mynd: EPA

Arsenal er búið að staðfesta að markvörðurinn Aaron Ramsdale er búinn að gera nýjan samning við félagið.


Ramsdale hefur verið lykilmaður frá komu sinni til Arsenal og var það eitt af forgangsmálum félagsins að semja við hann.

Á vefsíðu Arsenal er ekki greint frá því hversu langur nýi samningurinn er, en fjölmiðlar telja hann gilda til 2028.

Ramsdale hefur spilað 76 leiki frá komu sinni til Arsenal í ágúst 2021. Í þessum leikjum hefur hann haldið hreinu 28 sinnum en fengið 86 mörk á sig.

Hann á þrjá A-landsleiki að baki fyrir England og ætlar að gera sitt besta til að taka byrjunarliðssætið af Jordan Pickford hjá Englandi.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner