Óttar Magnús Karlsson, leikmaður Víkings var mjög sáttur við 2-0 sigur liðsins á Þrótti í kvöld.
Það stefndi allt í 0-0 jafntefli en Óttar kom Víkingum yfir með glæsilegu marki í uppbótartíma áður en Gary Martin bætti við öðru marki, stuttu seinna.
Það stefndi allt í 0-0 jafntefli en Óttar kom Víkingum yfir með glæsilegu marki í uppbótartíma áður en Gary Martin bætti við öðru marki, stuttu seinna.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 - 0 Þróttur R.
„Þetta er drullufínt, það var geggjað að ná að setja hann í lokin og ná í þessi þrjú stig."
„Ég fékk sendingu frá Gary, hann var búinn að segja mér að ég ætti að senda hann yfir en ég náði að leggja hann fyrir mig og hugsaði, afhverju ekki að skjóta? Ég smellhitti hann og það var gaman að sjá hann í markinu. Mér fannst þetta sjálfum ekki sérstakt færi en hann lá vel."
Hann er bjartsýnn á að fá byrjunarliðssæti bráðlega en hann hefur staðið sig vel þegar hann hefur fengið sénsinn í sumar.
„Þetta snýst um að standa sig þegar maður fær sénsinn, ég er að gera það og þetta hlýtur að fara að koma.
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.






















