Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
   mán 18. nóvember 2013 15:00
Magnús Már Einarsson
Ólafur Ingi: Reyni að halda mig á mottunni upp í stúku
Magnús Már Einarsson skrifar frá Zagreb
Ólafur Ingi á spjalli við Fótbolta.net í Zagreb í dag.
Ólafur Ingi á spjalli við Fótbolta.net í Zagreb í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Ingi Skúlason er mættur með íslenska landsliðinu til Zagreb í Króatíu þrátt fyrir að vera í leikbanni í síðari leik liðanna annað kvöld. Ólafur Ingi vildi alls ekki missa af leiknum á morgun.

,,Ég þurfti að fá leyfi hjá mínu félagi (Zulte Waregem) til að koma með. Þeir skilja aðstæður hérna, þetta er stærsti leikurinn í sögu íslenskrar knattspyrnu og það kom ekkert annað til greina en að fylgja með," sagði Ólafur Ingi við Fótbolta.net í dag en hann verðr í stúkunni annað kvöld.

,,Þetta verður taugatrekkjandi leikur eins og síðast en maður reynir að halda sig á mottunni upp í stúku."

Ólafur Ingi fékk rauða spjaldið í upphafi síðari hálfleiks á föstudag fyrir að toga Ivan Perisic niður þegar hann var að sleppa í gegn.

,,Snertingin var ekki mikil en ef hann mat það þannig að ég væri síðasti maður þá er þetta alveg rétt. Þetta gerðist ótrulega hratt."

,,Það myndaðist gat í vörninni hjá okkur og Rakitic lyfti botlanum inn fyrir. Hann (Perisic) er fljótari en ég og ég var vitlausu megin við hann. Það var annað hvort að hleypa honum í gegn eða reyna að gera þetta eins nett og ég gat. Hann lét sig detta auðveldlega og það fór þannig að ég fékk rautt og þeir aukaspyrnu."


Það hefði verið mjög slæmt ef Króatar hefðu náð að skora útivallarmark og því gerði Ólafur Ingi mögulega það rétta í stöðunni.

,,Við vitum ekki hvort hann hefði klárað færið en ég hugsa að þetta hafi verið ágætt í þessari stöðu. Strákarnir kláruðu þetta og þökk sé þeim þá héldum við núllinu," sagði Ólafur Ingi.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
banner