Kristján Guðmundsson, stjóri Keflvíkinga, var afar ánægður með frammistöðu yngri leikmanna liðsins í sigri liðsins á Hamri í 16-liða úrslitum Borgunarbikarsins í kvöld.
Leiknum lauk með 6-1 sigri Keflavíkur sem siglir því afar örugglega inn í 8-liða úrslitin.
Leiknum lauk með 6-1 sigri Keflavíkur sem siglir því afar örugglega inn í 8-liða úrslitin.
,,Við spilum í Bikarkeppninni, höfum unnið hana áður og af hverju ekki í ár," sagði Kristján að leik loknum.
,,Ég er ánægður með að við skyldum halda áfram og vera ákveðnir að skora mörk alveg fram að lokaflauti. Við erum ánægðir með ungu strákana og bjuggumst ekki við öðru en að þeir myndu standa sig vel í kvöld."
,,Þeir eru vel undirbúnir og eru með gott hugarfar í þetta og það er virkilega gaman að hafa möguleika á að setja þá inn á. Það er virkilega gaman að hafa möguleikann á að setja þá inn á."





















