Fernandes í stað Fernandes? - Owen vill Alonso - Chelsea leitar til systurfélagsins - Ítalskur bakvörður til Liverpool? - Arsenal í baráttuna um Gordon
Álitið - Hvaða lið veldur mestu vonbrigðum?
Hallgrímur Mar eftir að hafa byrjað á bekknum: „Hvað heldur þú?“
KA menn klöppuðu hreindýrum fyrir 0-5 sigurinn
Kristófer Ingi: Ekkert heyrt um samning og fókusa á að spila
Todor Hristov eftir 0-5 tap: „Aðeins dýrara lið en okkar“
Linta svekktur: Ánægður með spilamennskuna
Gylfi fékk högg og bólgnaði - „Það þarf bara að skoða það“
Alex Freyr: Draugar síðustu leikja sem koma
„Of margir sem eru spurningamerki sem er ekki gott þegar mótið er að hefjast“
Venni eftir sigur í Eyjum: Er alveg í skýjunum
Elías Már um samkeppnina: Erum tveir ólíkir framherjar og styðjum við bakið á hvor öðrum
Óli Skúla um danskan framherja: Þú ert þá að segja mér fréttir
Siggi Höskulds: Það er fokking óþolandi
„Ákvað að skjóta í markmanninn og það virkaði"
Þrennt sem stóð upp úr hjá Jóa Kalla
Álitið: Hver verður stoðsendingahæstur?
Bestur í Mjólkurbikarnum - „Klúbbur sem á ekkert að vera í þessari deild“
Tap í uppbótartíma en Konni er stoltur
Fyrirliðinn Eiður Aron: Við ætlum að vinna þessa deild
Álitið - Hver verður markakóngur?
   lau 19. júlí 2014 18:43
Gunnar Birgisson
Kjartan Henry: Geir Ólafs náttúrulega toppmaður
Kjartan var frábær í dag.
Kjartan var frábær í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kjartan Henry var mjög sáttur í leikslok þegar lið hans, KR unnu frábæran 1-4 útisigur á Val núna í dag. Kjartan átti frábæran leik og skoraði stórglæsilegt mark. Með þessum sigri komst KR nær toppnum. Vikan hefur verið erfið fyrir KR, tapa illa gegn Þór fyrir norðan og svekkjandi tap gegn Celtic fylgdi svo í kjölfarið. En hvað var það sem breyttist hjá KR liðinu?

Lestu um leikinn: Valur 1 -  4 KR

,,Það er kannski bara hugarfarsbreyting, vorum ekki nógu góðir á móti Þór, og þetta var ekki alveg að detta fyrir okkur, en ég er ekki að pæla í þeim leik núna, ég er að pæla í leiknum sem var núna," sagði Kjartan Henry eftir leik í samtali við Fótbolta.net.

Aðspurður hvort það hafi ekki verið sætt að sjá boltann í netinu eftir ansi mikla gagnrýni á hans frammistöðu hafði Kjartan þetta að segja:
,,Já, það var mjög gaman, ég er ekki búinn að vera standa mig alveg nógu vel, er að koma úr meiðslum. Ég er náttúrulega að koma úr erfiðum meiðslum og í upphafi tímabilsins voru þetta erfiðir leikir, fengum ekki að spila á heimavelli og ég var í gervigrasskóm í einhverjum leikjum, en þetta er allt að koma til og vellirnir líka," sagði Kjartan Henry sem oft í vikunni hefur verið kallaður Kristján Henry eftir að Geir Ólafs kom með það skemmtilega nafn á hann í Álitinu á Fótbolta.net.

,,Já, ég meina Geir Ólafs er náttúrulega toppmaður og ég hef bara gaman af þessu."

Viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan.
Slapp
banner
banner