„Þetta var frábær frammistaða hjá Daniel," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, eftir 3-2 sigurinn á PSG í Meistaradeildinni í gærkvöldi.
Klopp hrósaði þar Daniel Sturridge í hástert. Sturridge fékk tækifæri í byrjunarliðinu þar sem Roberto Firmino byrjaði á bekknum eftir að hafa meiðst á auga um helgina.
Klopp hrósaði þar Daniel Sturridge í hástert. Sturridge fékk tækifæri í byrjunarliðinu þar sem Roberto Firmino byrjaði á bekknum eftir að hafa meiðst á auga um helgina.
Sturridge þakkaði traustið með því að skora og eiga góðan leik.
„Miðjumennirnir stóðu sig framúrskarandi vel en þeir geta bara gert það þegar kantmennirnir og nían hjálpa til að halda liðinu þétt. Þetta var stórkostlegt."
„Ég sagði við Daniel fyrir leikinn að hann er í sínu besta formi síðan ég kynntist honum og núna þyrfti hann að nýta það. Hann gerði það. Ofurleikur og ofurmark."
Athugasemdir