Hinrik Harðarson, sóknarmaður Þróttar, hefur verið á eldi í ágúst og skorað átta mörk. Öll mörk hans á tímabilinu hafa komið í þessum mánuði. Hann skoraði þrennu í 3-1 sigri Þróttar gegn Reyni Sandgerði í 2. deildinni í dag.
Þróttur er í öðru sæti, sjö stigum frá þriðja sætinu, þegar fjórar umferðir eru eftir. Ægismenn eru í fjórða sæti níu stigum frá Þrótturum og eiga fimm leiki eftir.
Þróttur er í öðru sæti, sjö stigum frá þriðja sætinu, þegar fjórar umferðir eru eftir. Ægismenn eru í fjórða sæti níu stigum frá Þrótturum og eiga fimm leiki eftir.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 3 - 1 Reynir S.
„Það er geggjað að ná að loka þessu svona fyrir framan okkar fólk. Erfiður leikur í síðustu viku þar sem við gerðum jafntefli og það er geggjað að komast aftur á sigurbraut," sagði hinn átján ára gamli Hinrik eftir leikinn.
Hann var svo spurður út í eigin markaskorun og hversu funheitur hann hefur verið í ágúst.
„Ég er hrokkinn í gang eftir smá þurrk í byrjun tímabils. Það er ömurleg tilfinning að vera ekki að skora. Það er versta tilfinning í heimi að vera ekki að skora. Maður var að spila vel en það er alltaf fast í hausnum á manni þegar maður er ekki að skora. Það er geggjað að vera farinn að skora aftur," segir Hinrik sem er sonur markahróksins og íþróttafréttamannsins Harðar Magnússonar.
Ítölsk félög fylgjast með sókarmanninum unga og þá var hann orðaður við lið í efri deildum hér heima fyrir þetta tímabil.
„Ég tók þá ákvörðun að vera einn af lykilmönnunum í liðinu. Jeffsy (Ian Jeffs þjálfari) sannfærði mig um að vera áfram og ég sé ekki eftir því. Það hafa verið möguleikar á að fara út en ég held að besta í stöðunni núna sé að vera hérna heima og klára tímabilið með Þrótti. Svo kemur kannski eitthvað í framtíðinni. Draumurinn er að hjálpa liðinu upp."
Viðtalið við Hinrik má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.





















