Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
   mið 22. apríl 2026 20:51
Sölvi Haraldsson
Haddi: Fer ánægður með stigið norður
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Kaflaskiptur leikur. Við gerðum smá taktíska breytingu í hálfleik. Við vorum of varkárir í pressunni og þeir voru klárlega betri en við í fyrri hálfleik. Svo slepptum við aðeins af okkur beltinu í seinni hálfleik og við það opnaðist leikurinn. Það gat dottið báðu meginn. Virkilega ánægður með strákana, við komum upp á Skaga eftir að hafa tapað fyrstu tveimur leikjunum ósanngjarnt að okkar mati. Stemningin í hópnum er góð, við tókum á okkur fyrri hálfleikinn. Ég var virkilega ánægður með svarið og við förum ánægðir með stigið norður.“ sagði Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, eftir 1-1 jafntefli í Akraneshöllinni gegn Skagamönnum.

Lestu um leikinn: ÍA 1 -  1 KA

Haddi gerði þrefalda breytingu um miðjan seinni hálfleik sem breytti sóknarleik KA-manna.

„Það kom meiri kraftur í þetta og menn komu inn á sem gátu keyrt bakvið. Diego kom svo inn í þetta af krafti og skoraði markið okkar í dag. Það er bara virkilega jákvætt og þetta er eins og við höfum talað um að við munum vaxa inn í mót. Mér fannst frammistaðan okkar í fyrstu leikjunum betri en ég hélt. Ég fer ánægður með stigið norður því við vorum ekki nógu góðir í fyrri hálfleik.“

Helsta umræðuefnið fyrir leikinn var að leikurinn hafi verið spilaður inni í Akraneshöllinni. Haddi vill ekkert setja út á völlinn eða aðstöðuna.

„Bara flott. Það er frábær aðstaða hérna á Skaganum. Frábært gervigras, hiti, enginn vindur. Skagamenn tóku virkilega vel á móti okkur, bara frábært. Fyrir utan það að ég hef bara ekkert með það að segja hvar liðin spila sína leiki. Þetta var flott umgjörð og ég er ánægður.“

„Mér fannst frammistaðan í fyrstu tveimur leikjum virkilega flottar. Svo held ég að fólk geti verið sammála því að dómararnir kostuðu okkur mögulega einhver stig sem jafnast vonandi yfir mótið. Ég var virkilega ánægður með frammistöðuna og karakterinn í dag. Við munum vaxa inn í mótið því leikmenn eru að koma seint inn. Markmiðið er að bæta okkur í hverri einustu viku og við förum að kynnast hvorum öðrum betur. Við erum ánægðir með þetta eina stig.“

Viðtalið við Hadda má sjá í heild sinni hér að ofan.
Slapp
banner
banner