„Það er kannski andlega erfitt að vera efsta liðið í deildinni,“ sagði Ejub Puresevic, þjálfari Víkings, þegar hann var inntur eftir skýringu á spilamennsku sinna manna í 5-1 tapi gegn Fjölni í Pepsideild karla í kvöld.
Lestu um leikinn: Fjölnir 5 - 1 Víkingur Ó.
„Við vorum bara ekki tilbúnir í þennan leik. Á móti góðu liði eins og Fjölni verður manni refsað. Maður getur fundið margar skýringar en það er spurning hver rétta skýringin er.“
Ejub sagði að eina jákvæða við leikinn sé að hægt væri að læra af þessu. „Við verðum að vera tilbúnir í þessa leiki. 90-95% leikmanna minna spiluðu í 1. deildinni í fyrra. Það kom í ljós að við þurfum að læra og gera miklu betur til að verða úrvalsdeildarlið.“
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.























