,,Við byrjum frábærlega í þessum leik og lendum undir, lékum gríðarlega vel fyrstu 20-30 mínúturnar en náum kannski ekki að skapa okkur afgerandi færi," sagði Rúnar Kristinsson eftir 3-2 sigur KR á ÍBV á Hásteinsvelli í dag.
,,Það kom við það að mönnum leið vel á boltanum og þá skapaðist smá værukærð og fyrir vikið skora Eyjamenn tvö mörk á skömmum tíma sem kemur okkur í mikil vandræði en sem betur fer náðum við að minnka muninn rétt fyrir hálfleik og það gaf okkur meira sjálfstraust þegar við fórum inn í hálfleikinn." sagði Rúnar en Gary Martin skoraði mark á 3. mínútu uppbótartímans í fyrri hálfleik eftir að Jonathan Glenn og Víðir Þorvarðarson höfðu komið ÍBV tveimur mörkum yfir.
,,Við áttum svo sem von á því að ef við myndum ná að ýta liðinu okkar framar og pressa á þá, þá myndu þeir síga aftar og reyna að halda fengnum hlut," sagði Rúnar en KR-ingar áttu nánast seinni hálfleikinn.
,,Kjartan (Henry Finnbogason) var mjög góður, hann er búinn að æfa vel síðustu daga, þannig að við gáfum honum sénsinn aftur og hann nýtti hann fullkomlega og það er svona sem ég vil að mínir varamenn "acti" þegar þeir fá möguleikann," sagði Rúnar en Kjartan Henry skoraði jöfnunarmarkið þegar lítið var eftir af leiknum. Gary Martin skoraði svo sigurmarkið.






















